Árið 1985 söng ég í Galtalæk með Túnfiskunum, glæsilegur sönghópur úr unglingadeild Öldutúnsskóla sem gerði það gott með plötuútgáfu og framkomu á ýmsum skemmtunum og samkomum. Aðrir sem komu fram voru meðal annara Greifarnir, þeir spiluðu í stóru tjaldi á föstudagskvöldinu og ég ung og óhörnuð 14 ára stúlka horfði með aðdáun á Felix og dýrkaði hann. Árið 2007 sé ég sama blikið í augum sonar míns, hann dýrkar Felix Bergsson og Gunni og Felix eru reglulega á fóninum og í DVD spilaranum.
Hinrik hitti Felix í jólaþorpinu, hann bað um óskalag og bauð honum í kaffi.
Ég er enn hrifin af Felix og ef til er góð fyrirmynd þá er það hann!
Iiiii, það er nú ekkert!!! Ég vann einu sinni með Felix!!!!
SvaraEyðaEn annars hefði ég viljað vera þarna í Galtalæk um árið og sjá Túnfiskana, það hefur ekki verið lélegur sönghópuar þar, þið hafið rutt brautina fyrir Nylon ofl...