þriðjudagur, júlí 09, 2013

Vinnuaðstaðan tekin í gegn


 Þessir dúllurassar ætla að lúlla hjá mömmu sinni í nótt,
Eiginmaðurinn að vinna í Róm og við með kósíkvöld í kastalanum á meðan.  Náði þessari yndislegu mynd af þeim rétt áður en þeir fóru að rífast um það hver ætti að vera í miðjunni!


Ég er draslari... 
safna að mér alls kyns dóti.. 
sem verður að hrúgum út um allt.
Nú er lengi búið að standa til að taka til í vinnuaðstöðunni!
Það varð að veruleika í gær. 



og nú er ég búin að setja allt í merkta kassa...
taka saman allar perlur, föndurdót, lím, pappír, efni og garn og raða afskaplega skipulega í skókassa og plastkassa og pappakassa....
Allt á sínum stað

Ég verð að viðurkenna að ég sæki inspirasion í óreiðuna mína..
reyni að nýta galla mína í jákvæða hluti.

Hef alltaf verið svolítil Pollíanna... og þá er best að enda á því að blessa elsku rigninguna og þrumurnar og eldingarnar sem gáfu mér tíma til að taka til!

2 ummæli:

  1. Nafnlaus12:26 f.h.

    Til hamingju með að virkja orkuna þína í flokkun og tiltekt ... og blogg ... ég er alltaf á leiðinni í flokkun í bílskúrnum ... hann er einfaldlega fullur af óflokkuðu dóti ... ég nýti hann fyrir gróðurvörur af öllu tagi. Núna eru blómapottar bókstaflega útum allt ... Fór niður í kjallara í dag og náði meira :-)

    SvaraEyða
  2. Takk M.. þessi rigning er alveg að fara með okkur hér.. en sem betur fer gaf hún mér orku líka! Skúrinn fer ekki neitt... allt hefur sinn tíma!

    SvaraEyða