þriðjudagur, ágúst 14, 2012

Ágúst 2012

Ég og Felix Helgi erum ein í kotinu þessa dagana... og það er engin lognmolla hjá okkur.. enda er "Agosto Mandelese" "Mandalískur Ágúst í fullum gangi.


Við eyðum miklum tíma niðri á Campi með vinum okkar, hér að ofan eru það Laura og Flaminia.


Felix Helgi sjóræningi!


Hlegið á Campi, Marisa, Antonio og Silvano

Yndislegu vinkonur mínar, Cinzia, Patrizia og Laura með Flaminiu


Leiðinlegur fylgikvilli sumarsins á Ítalíu eru skógareldar, í síðustu viku geysuðu þeir hér allt í kring, 6 einstaklingar voru handteknir fyrir íkveikju.  Engin skilur ástæðu þessara íkveikju en það er ofboðslega þurrt..



 
Út um eldhúsgluggann

Út um svefnherbergisgluggann

Felix Helgi tilbúin í sund!

 Roberta nýkomin úr sundi

Roberta, Antonio og Felix

Flotta sumarlaugin okkar í Mandela,
Felix og Claudio

Roberta nýbúin að borða skúffuköku!



Ágústleikarnir í Mandela eru mikil skemmtun fyrir börnin, liðin eru fjögur og Felix Helgi er í gul/græna liðinu


Á laugardögum borðum við á aðaltorginu í Mandela.


Ég og Patrizia vinkona á torginu


La pupazza sem kom til okkar og dansaði á torginu, 
svo var hún brennd!


Stund milli stríða, Felix og Madonna að knúsast


Felix Helgi í sundlaugargarðinum Hydromania,
Fórum þangað í gær með Guðrúnu og Didda vinum okkar,
það var alveg hrikalega gaman og ekki skemmdi að skýjað var og ekki eins heitt og dagana þar á undan




Eins og sést þá væsir ekki um okkur mæðginin,
hver dagur ber ný ævintýri og á morgun er frídagur "Ferragosto"
þá verður vatnsstríð í þorpinu.
Felix er komin með risastóra nýja vatnsbyssu til í slaginn.

En mikið afskaplega söknum við Ingó og Hinriks!

2 ummæli:

Frú Bartolotti sagði...

Takk Hildur mín, gaman að fá að fylgjast aðeins með þér :)

Hildurina sagði...

Takk Frú Bartolotti:) en.. hver er Frú Bartolotti?